Hvar eru bestu tungumálanámskeiðin erlendis?
Hvar eru bestu tungumálanámskeiðin erlendis?
Tungumálanám erlendis er ein besta leiðin til að læra nýtt tungumál. Hér berum við saman vinsæla áfangastaði í Evrópu og hvað hentar ólíkum nemendum.
Spánn, Þýskaland og Ítalía eru meðal vinsælustu landa fyrir tungumálanám. Hér berum við saman nokkra af bestu áfangastöðunum og hvað hentar ólíkum nemendum.
Margir sem skoða tungumálanám erlendis spyrja sömu spurningar: Hvar eru bestu tungumálanámskeiðin erlendis?
Svarið er þó sjaldnast einfalt. Rétta valið fer fyrst og fremst eftir einstaklingnum sjálfum – áhuga, markmiðum og þeirri upplifun sem fólk vill fá úr námsdvöl sinni. Sumir vilja lifandi stórborg með menningu og næturlífi, aðrir kjósa rólegra umhverfi þar sem auðveldara er að einbeita sér að náminu.
Hjá Nám og Kúltúr vinnum við aðeins með völdum tungumálaskólum sem hafa áratuga reynslu af kennslu fyrir alþjóðlega nemendur. Skólarnir hafa þróað kennsluaðferðir sínar í gegnum árin og byggt upp sterkt faglegt umhverfi. Við vinnum ekki með nýja eða óreynda skóla – gæði og áreiðanleiki eru alltaf í forgrunni.
Samanburður á vinsælum áfangastöðum
Hér fyrir neðan má sjá einfaldan samanburð á nokkrum af vinsælustu borgunum fyrir tungumálanám erlendis. Þetta hjálpar lesendum að sjá fljótt hvaða staðir henta best ólíkum áherslum og lífsstíl.
| Borg | Tungumál | Hentar best fyrir |
|---|---|---|
| Tenerife | Spænska | Sól, strendur og rólegra umhverfi |
| Madrid | Spænska | Menningu, listasöfn og stórborgarlíf |
| Barcelona | Spænska | Strendur, sögu, menningu og borgarlíf |
| Berlín | Þýska | Alþjóðlegt andrúmsloft, listalíf og sögu |
| Konstans | Þýska | Náttúru, ró og einbeittara nám |
| Napoli | Ítalska | Matarmenningu, suðrænan lífsstíl og ítalska menningu |
Spánn – Tenerife, Madrid eða Barcelona
Spánn er einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga sem vilja læra spænsku. Landið býður upp á fjölbreyttar borgir og ólíkan lífsstíl eftir því hvar þú velur að stunda spænskunám.
Ef þú hefur áhuga á spænsku og vilt njóta sólar, stranda og afslappaðs lífsstíls gæti Tenerife verið frábær kostur. Þar sameinast tungumálanám og notalegt umhverfi þar sem auðvelt er að æfa tungumálið í daglegu lífi. Fyrir marga er þetta fullkomin blanda af námi og ferðalagi.
Ef þú sækist frekar eftir lifandi menningarlífi, söfnum, listasöfnum og stórborgarstemningu gæti Madrid verið rétti áfangastaðurinn. Þar færðu innsýn í spænska menningu á mjög lifandi hátt og borgin býður upp á ótal tækifæri til að nota tungumálið utan kennslustofunnar.
Svo er það Barcelona, sem margir telja vera eins konar „leynivopn“. Borgin sameinar margt af því besta sem Spánn hefur upp á að bjóða – ríka sögu, fjölbreytta menningu, strendur, líflegt næturlíf og framúrskarandi matargerð. Fyrir suma getur borgin þó verið nokkuð fjölmenn á háannatímum þar sem hún er mjög vinsæl meðal ferðamanna.
Þegar kemur að spænskunámi snýst valið því ekki um hvaða borg er „best“, heldur hvaða umhverfi hentar þér best og passar við lífsstíl þinn.
Þýskaland – Berlín eða Konstans
Líkt og á Spáni er einnig hægt að velja á milli ólíkra upplifana þegar kemur að þýskunámi í Þýskalandi. Sumir kjósa líflega og skapandi stórborg eins og Berlín, á meðan aðrir velja rólegra og fallegra umhverfi eins og Konstans við Bodensee-vatn.
Berlín er ein af mest spennandi menningarborgum Evrópu. Borgin er þekkt fyrir listalíf, sögu, fjölbreytta menningu og alþjóðlegt andrúmsloft. Þar er alltaf eitthvað að gerast og auðvelt að finna tækifæri til að æfa þýskuna bæði innan og utan kennslustofunnar.
Í Konstans er andrúmsloftið rólegra og náttúran í forgrunni. Borgin liggur við Bodensee-vatn, á landamærum Þýskalands og Sviss, og býður upp á einstakt umhverfi fyrir þá sem vilja einbeita sér að námi í fallegu og öruggu umhverfi.

Tungumálaskólinn sem við vinnum með er talinn vera meðal þeirra bestu í Evrópu og býður upp á heildstæða námsdvöl með gistingu og fullu fæði. Nemendur búa saman á staðnum og kynnast því bæði samnemendum sínum og alþjóðlegu samfélagi nemenda. Fyrir marga verða tengslin sem myndast á námskeiðinu vinátta sem endist langt fram yfir dvölina sjálfa.
Bæði í Berlín og Konstans skipuleggur skólinn fjölbreytta menningar- og félagslega viðburði meðan á námskeiðinu stendur. Sumir viðburðir eru innifaldir í námskeiðsgjaldi en aðrir kosta lítið aukalega, yfirleitt aðeins til að standa straum af aðgangseyri eða öðrum minni kostnaði.
Fyrir þá sem hafa áhuga á útivist er Konstans sérstaklega áhugaverður kostur. Nálægðin við fjöllin býður upp á fjölbreytta möguleika til gönguferða, hjólreiða og annarra útivistar. Á veturna er einnig stutt í vinsæl skíðasvæði í Sviss og Austurríki.
Það kemur því ekki á óvart að Konstans sé einn vinsælasti áfangastaður nemenda hjá Nám og Kúltúr sem vilja sameina markvisst tungumálanám og fallegt umhverfi.
Ítalía – Napoli og brátt einnig Róm
Ítalía er fyrir marga Íslendinga einn mest heillandi áfangastaður fyrir tungumálanám. Landið er þekkt fyrir ríka sögu, fallega arkitektúr, frábæra matargerð og menningu sem hefur haft áhrif á allan heiminn.
Í dag bjóðum við upp á ítölskunám í Napoli. Skólinn þar er rekinn sem non-profit skóli sem þýðir að allur hagnaður er notaður til að bæta kennsluna og þróa starfsemi skólans. Þessi nálgun hefur hjálpað skólanum að byggja upp sterkt orðspor í gegnum áratugi.
Napoli markar einnig upphaf suðurhluta Ítalíu þar sem lífsstíllinn er aðeins öðruvísi. Þar er meiri áhersla á að njóta lífsins, góðs matar og daglegs lífs frekar en stöðugan hraða. Þetta jafnvægi milli vinnu, afþreyingar og hvíldar er eitthvað sem margir Íslendingar laðast að.
Við erum einnig í viðræðum við tungumálaskóla í Róm og stefnum á að bjóða námskeið þar síðar. Róm þarf vart að kynna – borgin er ein merkasta menningarborg heims með ótrúlega sögu, list, arkitektúr og auðvitað framúrskarandi ítalskan mat.
Hvernig velur maður rétta tungumálanámskeiðið?
Eins og við nefndum í upphafi greinarinnar er kannski ekki nauðsynlegt að velta of mikið fyrir sér hvar sé „besti“ skólinn. Allir tungumálaskólarnir sem Nám og Kúltúr vinnur með hafa áratuga reynslu og sterkt orðspor meðal nemenda víðs vegar að úr heiminum.
Það sem skiptir mestu máli er að velja þann stað þar sem þú telur að þú munt njóta þín best. Sumir vilja lifandi stórborg með menningu og næturlífi, aðrir kjósa rólegra umhverfi við sjó eða í fallegu landslagi. Þegar tungumálanám fer fram í umhverfi sem passar við lífsstíl og áhuga nemandans verður upplifunin bæði ánægjulegri og árangursríkari.
Lönd sem þú getur skoðað
Ef þú vilt bera saman mismunandi lönd fyrir tungumálanám erlendis geturðu skoðað eftirfarandi síður:
Borgir sem þú getur skoðað
Hér eru nokkrar af vinsælustu borgunum hjá Nám og Kúltúr fyrir tungumálanám erlendis:
Fréttir og fróðleikur
Á blogginu okkar birtum við reglulega greinar um tungumálanám erlendis, samanburð á borgum og löndum, sem og hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem eru að undirbúa námsdvöl.
- Skoða allar greinar í Fréttum og fróðleik
- Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis? – samanburður milli landa
- Tungumálanám í Evrópu – af hverju og fyrir hverja?
- Af hverju nám og kúltúr
Viltu fá aðstoð við að velja rétt tungumálanámskeið? Hafðu samband við Nám og Kúltúr og við hjálpum þér að finna skóla sem hentar þér best.
- Endurhlaða síðu
- Opnast í nýjum glugga