Algengar spurningar um tungumálanám
Algengar spurningar um tungumálanámskeið hjá Nám og Kúltúr
Nám og námskeið
Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis?
Tungumálanámskeið geta byrjað frá um 37.000 kr. á viku, eftir skóla, borg og námsleið.
Hversu lengi standa tungumálanámskeið?
Flestir velja 1–4 vikna nám, en einnig er hægt að dvelja lengur hjá mörgum tungumálaskólum.
Get ég farið í tungumálanám án fyrri reynslu?
Já. Flest tungumálanámskeið bjóða upp á kennslu fyrir alla færnistig, frá byrjendum upp í lengra komna.
Er aldurstakmark á tungumálanámskeiðum?
Flest námskeið eru opin fyrir fullorðna á öllum aldri, og sum eru sérstaklega hönnuð fyrir 30+, 50+ eða eldri nemendur.
Hversu stórir eru bekkirnir?
Í mörgum tungumálaskólum eru litlir bekkir, oft með um 6–10 nemendum, sem gerir kennsluna persónulegri og skilvirkari.
Bókun, gisting og stuðningur
Er hægt að bóka gistingu með námskeiðinu?
Já. Margir skólar bjóða upp á gistingu hjá gestgjafafjölskyldu, stúdíóíbúð eða í nemendagistingu, allt eftir borg og skóla.
Hvenær byrja tungumálanámskeið?
Flest námskeið byrja alla mánudaga, þannig að auðvelt er að velja tíma sem hentar.
Hvernig eru tungumálaskólarnir sem Nám og Kúltúr vinnur með?
Allir skólarnir sem við bjóðum upp á hafa áratuga reynslu af tungumálakennslu og eru meðal hæst metnu skólanna á Google Reviews og Tripadvisor.
Hvernig bóka ég námskeið?
Þú getur bókað námskeið beint í gegnum Nám og Kúltúr. Við aðstoðum þig við val á námskeiði og getum einnig hjálpað með flug, gistingu og skipulag ferðar.
Er stuðningur í boði meðan á dvöl stendur?
Nám og Kúltúr fylgir nemendum frá því að bókun er gerð og þar til heim er komið. Við bjóðum upp á 24/7 neyðarsíma og einnig er alltaf hægt að hafa samband við okkur með tölvupósti á namogkultur@namogkultur.is.
Hvað ef ég þarf að hætta við bókun?
Ef upp koma ófyrirséðar aðstæður reynum við alltaf að hjálpa. Nám og Kúltúr býður upp á 100% endurgreiðslu í slíkum tilfellum gegn litlu umsýslugjaldi.
Helstu spurningar um verð, lengd og reynslu
Hvað kostar að fara í tungumálanámskeið erlendis?
Kostnaður við tungumálanámskeið getur verið mismunandi eftir borg, skóla og námsleið. Í mörgum tilfellum byrja námskeið frá um 37.000 kr. á viku, en verð getur verið breytilegt eftir lengd náms, kennslutíma á viku og hvort gistingu sé bætt við.
Hversu lengi er algengt að dvelja í tungumálanámi?
Margir velja að fara í 1–4 vikna tungumálanám, sérstaklega ef markmiðið er að bæta tungumálið á stuttum tíma. Aðrir velja lengri dvöl til að ná meiri færni og upplifa lífið í viðkomandi borg og menningu.
Þarf ég fyrri reynslu til að fara í tungumálanámskeið?
Nei, flest tungumálanámskeið eru opin öllum færnistigum. Nemendur taka oft stutt stöðupróf í upphafi svo hægt sé að setja þá í hóp sem hentar þeirra kunnáttu, hvort sem þeir eru byrjendur eða lengra komnir.
Vinsæl tungumálanámskeið hjá Nám og Kúltúr:
Napólí •
Tenerife •
Berlín •
Konstanz •
Madrid
Tungumálanámskeið erlendis
Veltu eitt af tugum skemmtilegra námskeiða um alla evrópu.
-
30 tíma spænskunámskeið í Barcelona | Nám og Kúltúr
Venjulegt verð 51.900 kr -
Tungumálanámskeið í Napolí - Létt 10 tímar á viku
Venjulegt verð 26.900 kr -
Markvisst námskeið í Madrid - 22 tímar á viku
Venjulegt verð 41.990 kr -
Tungumálanámskeið í Madríd 50 ára og eldri.
Venjulegt verð 41.990 kr