Tungumálanám erlendis - gott að æfa sig með scrabble

Hvað felst í þjónustu Nám og Kúltúrs?

Skýr þjónusta frá fyrstu fyrirspurn til heimkomu

Við hjá Nám og Kúltúr leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu og að vera með þátttakendum alla leið – frá fyrstu fyrirspurn og þar til heim er komið.

Um leið teljum við mikilvægt að vera skýr um hvað felst í þjónustu okkar og hvað ekki. Þessi grein er ætluð þeim sem vilja vita nákvæmlega hvað Nám og Kúltúr sér um, hvaða þjónustu samstarfsskólar okkar veita og hvernig við aðstoðum við undirbúning og skipulag ferðarinnar.


Tungumálanámið

Við vinnum eingöngu með vandlega völdum tungumálaskólum sem við treystum og teljum uppfylla okkar kröfur um gæði kennslu og þjónustu.

Veldu borg sem passar þinni dvöl

Skoðaðu ólíkar borgir í Evrópu og finndu námsumhverfi sem hentar markmiðum og lengd dvalar.

Við aðstoðum við val á námskeiði, svörum spurningum, sjáum um samskipti við skólann þegar þess þarf og leiðbeinum þér í gegnum bókunarferlið.

Markmið okkar er að finna námskeið sem hentar hverjum og einum, hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna.

Veldu næsta skref í tungumálanámi

Berðu saman lengd náms, vinsælar leiðir og hvaða valkostir henta þínum markmiðum best.


Flug

Nám og Kúltúr sér því miður ekki um bókun flugmiða.

Við erum hins vegar ávallt tilbúin að aðstoða við að finna hentug og þægileg flug til og frá áfangastaðnum og gefa ráð um bestu ferðaleiðirnar.

Auðvelt er að komast til nær allra áfangastaða Nám og Kúltúrs með beinu flugi frá Íslandi.

Madrid er helsta undantekningin, en yfirleitt er hægt að fá þægilegt flug með millilendingu, til dæmis í Zürich, þar sem biðtíminn er oft aðeins um einn og hálfur tími.

Ekki er heldur flogið beint til Verona frá Íslandi. Hins vegar er einfalt að fljúga til Mílanó og ferðast þaðan áfram með hraðlest. Lestarferðin frá Mílanó til Verona tekur aðeins um 50 mínútur.


Gisting

Við aðstoðum einnig með gistingu.

Yfirleitt eru samstarfsskólar okkar með traust samstarf við hótel, íbúðir, heimagistingu eða aðra gistimöguleika á námsstaðnum. Við tengjum þátttakendur við þá gistingu sem hentar best og aðstoðum með upplýsingagjöf og samskipti eftir þörfum.

Í sumum borgum getum við einnig boðið upp á gistingu í gegnum eigin samstarfsaðila. Framboð getur þó verið mismunandi eftir áfangastað og árstíma.


Greiðslur

Við leggjum áherslu á að greiðsluferlið sé einfalt og skýrt.

Við upplýsum alltaf fyrirfram hvernig greiðslur fara fram, hvaða skilmálar gilda og hvenær greiða þarf fyrir námskeið eða gistingu.

Ef eitthvað er óljóst er alltaf hægt að hafa samband við okkur áður en bókun er staðfest.


Ef eitthvað kemur upp á

Þótt samstarfsskólinn sjái um kennsluna og daglega þjónustu á áfangastaðnum getur þú ávallt haft samband við Nám og Kúltúr ef þú þarft aðstoð eða ráðleggingar.

Við reynum ávallt að leiðbeina þátttakendum, svara spurningum og hjálpa til við að finna lausnir ef eitthvað óvænt kemur upp fyrir brottför eða meðan á dvöl stendur.

Þú ert því aldrei einn á ferðinni.


Það sem við getum ekki ábyrgst

Við getum ekki ábyrgst þjónustu flugfélaga, hótela eða annarra sjálfstæðra þjónustuaðila.

Við veljum hins vegar samstarfsskóla okkar af mikilli kostgæfni og reynum ávallt að leiðbeina þátttakendum ef upp koma spurningar eða óvæntar aðstæður.


Það sem gerir Nám og Kúltúr öðruvísi

Við sjáum okkur ekki eingöngu sem millilið sem selur tungumálanámskeið.

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu á íslensku, svörum spurningum, aðstoðum við undirbúning ferðarinnar og reynum að gera allt ferlið eins einfalt og öruggt og mögulegt er.

Markmið okkar er ekki að bjóða hundruð skóla um allan heim heldur að vinna með samstarfsskólum sem við treystum og getum staðið heilshugar á bak við.

Við teljum að góð þjónusta skipti jafn miklu máli og gott námskeið.


Í stuttu máli

Nám og Kúltúr aðstoðar með:

✅ Ráðgjöf um val á námskeiði.

✅ Samskipti við samstarfsskólann.

✅ Leiðbeiningar varðandi gistingu.

✅ Aðstoð við að finna hentugar flugleiðir.

✅ Persónulega þjónustu á íslensku.

✅ Aðstoð ef upp koma spurningar fyrir eða meðan á dvöl stendur.

Nám og Kúltúr sér ekki um:

❌ Bókun flugmiða.

❌ Rekstur hótela eða annarra gististaða.

❌ Þjónustu flugfélaga eða annarra sjálfstæðra þjónustuaðila.


Með þér alla leið

Þótt Nám og Kúltúr bóki hvorki flug né reki gististaði sjálft gerum við okkar besta til að leiðbeina þátttakendum við skipulag ferðarinnar og tengja þá við trausta samstarfsaðila.

Markmið okkar er að gera það eins einfalt og öruggt og mögulegt er að fara í tungumálanám erlendis.

Við erum með þér alla leið – frá fyrstu fyrirspurn til heimkomu.

Til baka
Til baka í blogg

Skrifa athugasemd

Athugasemdir þurfa samþykki áður en þær eru birtar.