Tungumálanám í Evrópu – samanburður á verði tungumálanámskeiða í borgum eins og Napoli, París og Madrid

Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis? – Samanburður milli landa

Verðsamanburður á tungumálanámskeiðum í Evrópu

Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis?
Verðið getur verið mjög mismunandi eftir landi og borg, en í Evrópu getur tveggja vikna námskeið byrjað frá um 66.000 kr. og farið upp í yfir 140.000 kr., eins og sjá má í samanburðinum hér fyrir neðan.

Verð á tungumálanámskeiðum erlendis getur verið mjög mismunandi eftir landi, borg og tegund námskeiðs. Þess vegna getur verið skynsamlegt að bera saman nokkra áfangastaði áður en ákvörðun er tekin.

Í mörgum tilvikum eru námskeiðin mjög svipuð hvað varðar fjölda kennslustunda og stærð hópa. Munurinn liggur því oft einfaldlega í því hvar í Evrópu námið fer fram.

Tungumálanámskeið erlendis geta kostað frá um 66.000 kr
fyrir tveggja vikna námskeið, en í dýrari borgum eins og París
getur verðið farið yfir 140.000 kr.


Dæmi um verð á tungumálanámi í Evrópu

Ef við skoðum tveggja vikna námskeið með um 20 kennslustundum á viku, má sjá að verð getur verið mjög ólíkt milli borga.

Napoli

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 66.000 kr

París

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 143.700 kr

Munur: 77.700 kr

Námskeiðin eru að mestu sambærileg hvað varðar kennslu og skipulag, en París er einfaldlega ein af dýrari borgum Evrópu. Napóli er hins vegar meðal hagkvæmustu áfangastaða okkar.


Berlín og París – nær samanburður

Kanski er sanngjarnara að bera saman borgir sem eru svipaðar að stærð og stöðu, til dæmis París og Berlín.

Berlín

2 vikur – 30 tímar á viku
Verð: 122.900 kr

París

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 143.700 kr

Þessi samanburður sýnir að borgir í norður Evrópu eru almennt dýrari, þó munurinn sé ekki alltaf jafn mikill og þegar suður Evrópa er borin saman við stórborgir eins og París.

Samanburður á verði tungumálanámskeiða erlendis í mismunandi löndum


Námskeið með gistingu og fæði

Sum námskeið bjóða einnig upp á gistingu og fullt fæði sem hluta af pakkanum.

Berlín eða Konstanz

2 vikur – 30 tímar á viku
Gisting og fullt fæði innifalið

Verð: 355.900 kr

Í þessu tilviki er um að ræða mjög öflugt námskeið með 30 kennslustundum á viku, auk þess sem nemendur fá þrjár máltíðir á dag og gistingu, oftast í tveggja manna herbergi.

Skólarnir í Berlín og Konstanz eru einnig þekktir fyrir mjög góða aðstöðu og notalega kantínu þar sem nemendur hittast milli kennslustunda.


Verð á tungumálanámi á Spáni

Ef við færum okkur til Spánar má sjá að verðmunurinn milli borga er mun minni.

Tenerife

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 75.900 kr

Madrid

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 78.890 kr

Barcelona

2 vikur – 20 tímar á viku
Verð: 71.800 kr

Það kemur kannski sumum á óvart að Barcelona er ódýrust í þessu dæmi. Eins og sést er þó munurinn ekki mikill — aðeins um 10% á milli hæsta og lægsta verðs.


Lægra verð fyrir lengri dvöl

Flestir tungumálaskólar bjóða einnig hagstæðara verð fyrir þá sem ákveða að dvelja lengur.

Ef nemandi velur að vera í 3–4 vikur eða lengur lækkar verðið oft á hverja viku. Þannig getur lengri dvöl orðið mun hagkvæmari en styttra námskeið.

Lengri dvöl hefur einnig aðra kosti. Nemendur fá meiri tíma til að venjast tungumálinu, taka þátt í daglegu lífi í borginni og kynnast menningu landsins.

Þess vegna velja margir að vera aðeins lengur þegar þeir fara í tungumálanám erlendis — bæði til að ná meiri framförum í tungumálinu og til að fá betra verð á námskeiðinu.

Þú getur farið yfir öll erlendu tungumálanámskeiðin, við bjóðum uppá meira en 20 námskeið.

Best er að skoða námskeiðin okkar á eigin spýtur

Tenerife - Madrid - Barcelona - Berlín - Konstanz - París - Napoli

Fréttir og fróðleikur

Tungumálanám í Evrópu – Af hverju og fyrir hverja?

Allt sem þú þarft að vita áður en þú leggur af stað

Allar greinar og fróðleikur á einum stað

Sjáðu samanburð á TOEFL og CEFR

Tungumálanám erlendis fyrir 50+ – af hverju velja sífellt fleiri þetta?Hvað kostar spænskunám á Tenerife og af hverju velja svo margir Íslendingar Tenerife?

Það er góð regla að kynna sér þann sem maður á í viðskiptum við - þess vegna mælum við með að þú lesir "Af hverju Nám og Kúltúr" þú getur einnig litið á um okkur til að fræðast meira um Nám og Kúltúr

Svo getur þú ávallt haft samband við okkur eða sent okkur tölvupóst á namogkultur@namogkultur.is

Skrifa athugasemd

Athugasemdir þurfa samþykki áður en þær eru birtar.

Til baka í fréttir