Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis? – Samanburður milli landa
Verðsamanburður á tungumálanámskeiðum í Evrópu
Hvað kostar tungumálanámskeið erlendis? Verðið getur verið mjög mismunandi eftir landi, borg og tegund námskeiðs. Í Evrópu getur tveggja vikna námskeið byrjað frá um 66.000 kr. og farið upp í yfir 122.900 kr., eins og sjá má í samanburðinum hér fyrir neðan.
Þess vegna getur verið skynsamlegt að bera saman nokkra áfangastaði áður en ákvörðun er tekin. Í mörgum tilvikum eru námskeiðin mjög svipuð hvað varðar fjölda kennslustunda og stærð hópa. Munurinn liggur þá oft einfaldlega í því hvar í Evrópu námið fer fram og hvaða borg eða umgjörð þú velur.
Verð segir þó ekki alla söguna. Dýrari borg getur boðið ákveðna menningarlega sérstöðu, á meðan hagstæðari borg getur gefið meira svigrúm til lengri dvalar eða jafnvel fleiri vikna náms. Best er því að horfa bæði á verð, innihald námskeiðsins og hvaða upplifun þú vilt fá út úr dvölinni.
Skoðaðu námskeiðin sjálf
Hér geturðu farið beint á helstu síður og borið saman borgir og námsleiðir á eigin spýtur.
Dæmi um verð á tungumálanámi í Evrópu
Ef við skoðum tveggja vikna námskeið með um 20 kennslustundum á viku má sjá að verð getur verið mjög ólíkt milli borga. Hér fyrir neðan er skýr samanburðartafla sem sýnir hversu mikið munar á mismunandi áfangastöðum.
| Borg | Lengd | Nám | Verð | Athugasemd |
|---|---|---|---|---|
| Napólí | 2 vikur | 20 tímar á viku | 66.000 kr | Mjög hagstæður kostur í Suður-Evrópu |
| Barcelona | 2 vikur | 20 tímar á viku | 71.800 kr | Ódýrast í þessu Spánardæmi |
| Tenerife | 2 vikur | 20 tímar á viku | 75.900 kr | Hagstæður kostur með stöðugu verði |
| Madrid | 2 vikur | 20 tímar á viku | 78.890 kr | Lítið hærra verð en á Tenerife og í Barcelona |
| París | 2 vikur | 20 tímar á viku | 87.900 kr | Meðal dýrari borga í samanburðinum |
Skýrasti punkturinn í samanburðinum: munurinn á Napólí og París er 21.900 kr fyrir tvær vikur í sambærilegu námsformi. Það sýnir vel hversu mikið borgarvalið eitt og sér getur skipt máli fyrir heildarkostnað.
Námskeiðin eru að mestu sambærileg hvað varðar kennslu og skipulag, en París er einfaldlega ein af dýrari borgum Evrópu. Napólí er hins vegar meðal hagkvæmustu áfangastaða okkar. Fyrir marga getur þessi munur ráðið því hvort best sé að velja stutta dvöl í dýrari borg eða lengri dvöl þar sem verðið er hagstæðara.
Ef við færum okkur yfir í Spán sést að verðmunurinn milli borga er mun minni. Barcelona, Tenerife og Madrid eru tiltölulega nálægt hver annarri í verði, og munurinn í þessu dæmi er aðeins um 10% á milli hæsta og lægsta verðs. Það gerir Spán oft að góðum vettvangi fyrir þá sem vilja velja borg meira út frá stemningu og lífsstíl en miklum verðmun.
Berðu saman borgir og námsleiðir
Hér geturðu farið beint í borgirnar sem nefndar eru í samanburðinum.
Berlín og París – sanngjarnari samanburður milli stærri borga
Kanski er sanngjarnara að bera saman borgir sem eru svipaðar að stærð og stöðu, til dæmis París og Berlín. Hér verður samt að hafa í huga að Berlínardæmið er með 30 kennslustundum á viku, á meðan Parísardæmið er með 20 kennslustundir á viku. Þrátt fyrir það er Berlín samt ódýrari í þessu dæmi.
| Borg | Lengd | Nám | Verð | Munur |
|---|---|---|---|---|
| Berlín | 2 vikur | 30 tímar á viku | 122.900 kr | 35.000 kr dýrara en Berlín |
| París | 2 vikur | 20 tímar á viku | 87.900 kr | 35.000 kr ódýrara en Berlín |
Þessi samanburður sýnir að borgir í Norður-Evrópu eru almennt dýrari en margir staðir í Suður-Evrópu, þó munurinn sé ekki alltaf jafn mikill og þegar stórborg eins og París er borin saman við hagstæðari staði á borð við Napólí eða spænsku borgirnar.
Námskeið með gistingu og fæði
Sum námskeið bjóða einnig upp á gistingu og fullt fæði sem hluta af pakkanum. Þá verður samanburðurinn annars eðlis, því verðið nær ekki aðeins yfir kennsluna heldur líka umgjörðina í heild.
| Staður | Lengd | Nám | Innifalið | Verð |
|---|---|---|---|---|
| Berlín eða Konstans | 2 vikur | 30 tímar á viku | Gisting og fullt fæði | 355.900 kr |
Í þessu tilviki er um að ræða mjög öflugt námskeið með 30 kennslustundum á viku, auk þess sem nemendur fá þrjár máltíðir á dag og gistingu, oftast í tveggja manna herbergi. Skólarnir í Berlín og Konstans eru einnig þekktir fyrir mjög góða aðstöðu og notalega kantínu þar sem nemendur hittast milli kennslustunda.
Lægra verð fyrir lengri dvöl
Flestir tungumálaskólar bjóða hagstæðara verð fyrir þá sem ákveða að dvelja lengur. Ef nemandi velur að vera í 3–4 vikur eða lengur lækkar verðið oft á hverja viku. Þannig getur lengri dvöl orðið mun hagkvæmari en styttra námskeið.
Lengri dvöl hefur einnig aðra kosti. Nemendur fá meiri tíma til að venjast tungumálinu, taka þátt í daglegu lífi í borginni og kynnast menningu landsins. Þess vegna velja margir að vera aðeins lengur þegar þeir fara í tungumálanám erlendis — bæði til að ná meiri framförum í tungumálinu og til að fá betra verð á námskeiðinu.
Niðurstaða
Verðsamanburður á tungumálanámi í Evrópu sýnir að borgarvalið getur haft mjög mikil áhrif á heildarkostnað. Fyrir suma verður hagkvæmni lykilatriði, fyrir aðra vegur menning, borgarlíf eða ákveðin námsumgjörð þyngra. Rétta leiðin er sú sem passar bæði fjárhagsramma, markmiðum og þeirri upplifun sem þú vilt fá út úr dvölinni.
Best er að bera saman námskeiðin sjálf, skoða borgirnar af yfirvegun og velja síðan þann áfangastað sem gefur þér besta jafnvægið milli verðs, gæða og upplifunar.
Fréttir og fróðleikur
Greinar sem hjálpa þér að bera saman valkosti áður en þú velur.
Tungumálanám í Evrópu – af hverju og fyrir hverja?
Berlín - Skapandi stórborg fyrir þýskunámskeið
Allt sem þú þarft að vita áður en þú leggur af stað
Allar greinar og fróðleikur á einum stað
Sjáðu samanburð á TOEFL og CEFR
Tungumálanám erlendis fyrir 50+ – af hverju velja sífellt fleiri þetta?
- Endurhlaða síðu
- Opnast í nýjum glugga